Svavar Knútur, sem segja má að sé tengdasonur Amtsbókasafnsins, verður með ókeypis tónleika á Amtsbókasafninu á Þorláksmessu. Hann byrjar að spila kl. 17:00 og lofar ljúfum jólatónum :-)
Kjörið til að hleypa jólaandanum inn í sálina og birgja sig upp af lesefni og myndefni fyrir þetta drjúga jólafrí.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!
Laufabrauð eður kökur af hveitideigi, vættu í sykurblandinni góðri mjólk eður rjóma, útskornar ýmislega, og soðnar í bræddu smjöri, eru svo algengin, að frá þeim þarf ekki meira að segja.
Kæru safngestir!
Vegna færðarinnar í bænum okkar fallega þá viljum við láta ykkur vita að skilafrestur á öllum gögnum sem átti að skila 10.-12. desember...
Úrslit í samkeppni akureyrskra ungskálda um skapandi skrif hafa nú verið kynnt og varð Aldís Embla Björnsdóttir hlutskörpust. Fyrir smásögu sína Einræðisherra hlaut hún 50.000 krónur í verðlaun. Önnur verðlaun 30.000 kr. hlaut Kristófer Alex Guðmundsson fyrir ljóðabálk sinn Brútháll og þriðju verðlaun 20.000 kr. Birna Pétursdóttir fyrir leikþáttinn Bóhemíudrottningin. Öll þrjú fengu þau ritverkið Jónas Hallgrímsson Ævimynd eftir Böðvar Guðmundsson að gjöf frá Menningarfélagi Hrauns í Öxnadal.
Í desember er þemað; Ástarsögur -
Hvað er yndislegra í skammdeginu en að hjúfra sig undir teppi með góða ástarsögu og heitt súkkulaði?
Rómantískar ástarsögur þar sem hið fullkomna par þarf að yfirvinna ótal hindranir og leiðrétta misskilning á misskilning ofan áður en þau ná saman að lokum...
Látum okkur dreyma Það er yljar okkur um hjartaræturnar :-)
Í dag verða veitt verðlaun hér á Amtsbókasafninu í samkeppni ungskálda. Athöfnin hefst klukkan 17:00.
Verk sigurvegarans verður lesið upp fyrir áheyrendur auk þess sem dómnefndin verður með örstutta umfjöllun um verk sigurvegaranna þriggja.
HEIMILISFRIÐUR HEIMSFRIÐUR
OFBELDI GEGN FÖTLUÐUM KONUM
Samverustund á Amtsbókasafninu í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi, laugardaginn 6. desember kl. 14:00.
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir verkefnastýra hjá Tabú fjallar um samfélagslega stöðu fatlaðra kvenna,
birtingamyndir ofbeldis, helstu áhættuþætti og afleiðingar. Embla talar af eigin reynslu og veltir fyrir sér hvað sé til ráða.
Icelandair hótel Akureyri og Amtsbókasafnið á Akureyri bjóða Akureyringum að hlusta á upplestur á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Þessi einstaka og töfrandi saga verður lesin þann 10. desember kl.16.00. Um lesturinn sér Vilhjálmur Bergmann Bragason leikskáld. Boðið verður uppá kakó og smákökur.
Allir hjartanlega velkomnir!
Amtsbókasafnið á Akureyri fékk í dag eftirfarandi skilaboð :
Til hamingju!
Liðið þitt, Amtsbókasafnið - Allir, bar sigur úr býtum í Opnum flokki, 10-29 í Allir lesa landsleik í lestri. Við óskum ykkur innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og þökkum kærlega fyrir þátttökuna.
Viðskiptavinir okkar eru greinilega að standa sig í lestrinum Við þökkum öllum sem tóku þátt alveg innilega fyrir og óskum liðinu okkar til hamingju með árangurinn!
Steinunn Sigurðardóttir kemur og kynnir nýja skáldsögu sína föstudaginn 14. nóvember kl. 12:00 -
GÆÐAKONUR -
María Hólm Magnadóttir, alþjóðlega virtur eldfjallafræðingur, er söguhetja í Gæðakonum, skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur sem Bjartur gefur út.