Vetrarafgreiðslutíminn kominn í gang! - með vetrinum lengist afgreiðslutími Amtsbókasafnsins

Með haustinu kemur oft rigning og með rigningu kemur gott skap. Munið bara að setja alltaf safnefni í poka þegar eitthvað vott lekur niður á okkur af himnum ofan. Vatn og safnefni eru nefnilega ekki góðir vinir ...

En afgreiðslutími safnsins í vetur verður sá sami og áður:

Mánudagar: 10:00-19:00
Þriðjudagar: 10:00-19:00
Miðvikudagar: 10:00-19:00
Fimmtudagar: 10:00-22:00
Föstudagar: 10:00-19:00
Laugardagar: 12:00-17:00
Sunnudagar: LOKAÐ

Við hlökkum til að sjá ykkur mikið og meira á safninu í vetur!

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan