Laugardaginn 4. nóvember mættu rúmlega 20 áhugamenn um íslenska hljóðritun til að hlusta á síðari fyrirlestur Njáls Sigurðssonar um efnið, og var þessi fyrirlestur með sérstakri áherslu á norðlensk hljóðrit. Tókst mjög vel til hjá Njáli og voru gestir sammála að um þetta væri góður endir á glæsilegri sýningu.
Sýningunni lýkur 9. nóvember, en þá tekur við norræni skjaladagurinn og einnig er stutt í norrænu bókasafnavikuna!