Til hamingju með íslensku bókmenntaverðlaunin!

Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson fékk íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Sumarljós og svo kemur nóttinÍ dag, fimmtudaginn 2. febrúar 2006 kl. 16:00, voru afhent íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bækur útgefnar árið 2005. Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum, fagurbókmenntum og fræðibókum (bókum almenns efnis).

Mynd af Jóhannesi S. Kjarval en bók um hann í ritstjórn Kristínar B. Guðnadóttur og fleiri hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006Í flokki fagurbókmennta hlaut Jón Kalman Stefánsson verðlaun fyrir bók sína Sumarljós og svo kemur nóttin, og í flokki fræðibóka, bóka almenns efnis, var það bókin Kjarval sem Kristín B. Guðnadóttir og fleiri ritstýrðu, sem hlaut verðlaunin.

Til hamingju verðlaunahafar og þessar bækur eru náttúrlega til á Amtsbókasafninu!



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan