Þrátt fyrir að heimasíða Amtsbókasafnsins hafi legið í sumarleyfisdvala um stund, þá þýðir það alls ekki að Amtsbókasafnið sé í hvíld. Nei nei, það er sko alltaf mikið líf á safninu. Vinsælt að fá lánaðar bækur í sumarfríinu. Nýir titlar bætast reglulega við og má hér fyrir neðan sjá aðeins brot af þeim:
Harry Potter and the half-blood prince : J.K. Rowling slær alltaf sölumetin með Harry Potter bókunum og þessi er sú sjötta og næstsíðasta í röðinni. Amtsbókasafnið hefur fengið þessa frábæru bók á safnið og nú er um að gera að reyna að næla sér í eintak.
Meet the Fockers : Þessi mynd er sjálfstætt framhald af myndinni Meet the Parents, þar sem Robert De Niro fór á kostum ásamt Ben Stiller. Hér bætast við goðsagnirnar Dustin Hoffman og Barbra Streisand - úr verður ótrúlega fyndinn kokkteill. Þess má geta að Dustin Hoffman fékk nýlega MTV-verðlaun sem besti gamanleikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni.
Kalaharí vélritunarskólinn fyrir karlmenn : Kvenspæjarastofu-bækurnar njóta mikilla vinsælda og er þessi bók númer fjögur í röðinni.
Nýjar teiknimyndasögur bætast við reglulega, myndbönd og mynddiskar, og svo auðvitað kiljuútgáfurnar af vinsælustu bókunum. Forlög eru farin að sjá mikinn hag í því að gefa út bækur í kiljuformi og við á Amtsbókasafninu eltum öll þau eintök uppi líka.
Svo viljum við endilega minna ykkur á sýninguna glæsilegu sem er í gangi núna, og einnig er hún Halldóra á Amts-Café alltaf að galdra fram dýrindis súpur og fleira gott hjá sér.
Það er því ekki afleit hugmynd að skella sér á Amtsbókasafnið, fá sér súpu og brauð, fá lánað eintak af nýjustu bókunum og myndunum og koma sér vel fyrir heima, úti á verönd eða inni, og týnast í þessum skemmtilegu ævintýraheimum.
Ævintýrin gerast reglulega á Amtsbókasafninu!