Rúmlega 80 manns hlustuðu á Jón Gnarr! - Indjáninn sló í gegn!

Rúmlega 80 manns mættu til að hlýða á Jón Gnarr og fá tækifæri til að spyrja hann spjörunum úrJón Gnarr hefur verið mjög vinsæll fyrir verk sín í sjónvarpi og útvarpi. Hann hefur auk þess leikið í kvikmynd, sjónvarpsauglýsingum og skrifað pistla og hugleiðingar í blöð. Fyrir skömmu gaf hann út bók með samansafni af hugleiðingum sínum, og þar áður hafði hann skrifað Plebbabókina.

Núna er nýkomin út bókin Indjáninn sem er "skálduð ævisaga" og tekur Jón Gnarr skýrt fram í eftirmála bókarinnar að hann vilji alls ekki láta skilgreina þessa bók sem ævisögu, en það er þó allt satt í henni ... hann trúir ekki á lygi.

Jón Gnarr stendur hér og les upp úr Indjánanum og segir sögur af sér sem krakka leikandi við ömmu sínaFimmtudaginn 23. nóvember kom Jón Gnarr og las úr Indjánanum og fjallaði örlítið um bókina sína. Einnig leyfði hann fyrirspurnir úr sal. Skemmst er frá því að segja að þessi upplestur sló í gegn, því rúmlega 80 manns mættu!! Gestirnir voru á öllum aldri (frá 5 og upp úr) og skemmtu sér stórkostlega.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan