sem haldin er í anddyri Amtsbókasafnsins á Akureyri. Sýningin er sett upp í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sveinssonar - Nonna.
Þarna má sjá glæsilega uppsetningu á spjöldum yfir ævi Nonna, nokkrir munir verða til sýningar, og auðvitað bendum við á að finna má bækur eftir Nonna á safninu, bæði til útlána og til skoðunar á safninu sjálfu.
Sýningin stendur frá 10. nóvember 2007 til ársloka.