Nýir titlar daglega

Eins og safngestir hafa eflaust tekið eftir þá koma nýir titlar daglega inn á safnið. Starfsmenn keppast við það að koma þeim í útlánalegt horf sem allra fyrst, til þess að safngestir geti fengið það nýjasta sem allra fyrst. Verið því endilega vakandi fyrir nýjum titlum á Amtsbókasafninu.

Við erum að tala um bækur, tímarit, tónlist og kvikmyndir. Einnig viljum við biðja fólk um að vera duglegt að koma með ábendingar um efni sem mætti kaupa á safnið. Það er hægt að gera með því að fylla út þar til gerða miða sem eru í afgreiðslu safnsins, eða með því að fylla út rafræna umsókn hér á netinu.

Bókaútgefendur eru farnir að gefa út kiljuútgáfur af mörgum vinsælum bókum skömmu eftir fyrsta útgáfudag. Þær bækur eru þrælsniðugar og léttar í sumarfríið.

Hver man ekki eftir söngleikjunum Bugsy Malone og Grease (og ekki jafnfrægu framhaldinu - Grease 2)? Þetta eru titlar sem eru nýverið komnir í mynddiskaeign Amtsbókasafnsins. Stórvirki á borð við Citizen Kane er nú loksins komið í mynddiskadeildina, sem og nokkrar frábærar ítalskar myndir, t.d. eftir meistara eins og Fellini og Pasolini.

Tónlistardeildin stækkar ört líka og eru nýir geisladiskar á sérstökum vagni á 1. hæðinni.

Við vonumst auðvitað eftir því að geta haldið áfram að bæta við safnkostinn sem mest, og að þið kunnið að meta þetta. Munið líka að Amtsbókasafnið er svokallað skylduskilasafn og þar af leiðandi á aðgangur ykkar að íslensku efni að vera einn sá besti á landinu.

Sjáumst á bókasafninu!



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan