Eins og flest ykkar vita, þá var tekið upp nýtt bókasafnskerfi hér á Amtsbókasafninu í nóvember sl. Þetta kerfi hefur virkað vel en alltaf má gera betur.
Vikuna 10.-14. júlí verður skipt yfir í nýja útgáfu kerfisins og við það verða dálitlar breytingar á starfsemi safnsins þessa viku:
- Það verður ekki hægt að skoða www.gegnir.is og stöðu sína þar, sömuleiðis verður ekki hægt að panta bækur
- Samt er hægt að leita í óuppfærðum prufugrunni: http://wwwtest.gegnir.is/F - athugið það upp á heimildir og annað
- Starfsfólk mun ekki geta flett upp í safnkostinum í tölvunum, og séð hvort viðkomandi bók sé inni eða ekki
- Upplýsingaþjónustan verður við þetta dálítið takmörkuð, en við reynum okkar besta
Einhverjir hnökrar verða sem sagt á starfsemi safnsins þessa vikuna, en safnið verður samt sem áður opið og afgreiðslutíminn óbreyttur. Safngestir geta fengið lánað og skilað, eins og áður.
Við biðjumst velvirðingar á þessu, en niðurstaðan verður enn betra og öruggara bókasafnskerfi, sem vonandi verður komið í fullt lag mánudaginn 17. júlí, þó svo að einhverjir hnökrar gætu verið einhvern tíma að hverfa. Þolinmæði þrautir vinnur allar, og betra bókasafnskerfi mun auðvitað þýða: betri þjónusta!
Með kærri kveðju,
hlökkum til að sjá ykkur á safninu!
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri