Norrænn skjaladagur laugardaginn 11. nóvember

Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember, sem nú ber upp á 11. nóvember.

Í ár er þema skjaladagsins “Samgöngur”. Hægt er að lesa nánar um þemað í leiðara skjaladagsins http://www.skjaladagur.is og kanna hvað er á dagskrá hjá þeim skjalasöfnum sem taka þátt í skjaladeginum.

Héraðsskjalasafnið á Akureyri tekur þátt í þessum vef undir slagorðinu Á FERÐ og er hægt að sjá þar ýmis gögn sem tengjast samgöngumálum í Eyjafirði á fyrri tíð. Einnig hefur verið sett upp sýning á Akureyri af þessu tilefni og er hún tvískipt, annars vegar í anddyri Ráðhússins í Geislagötu 9, þar sem sýnd eru nokkur frumskjöl og hins vegar í anddyri Héraðsskjalasafns og Amtsbókasafns í Brekkugötu 17, þar sem efnið er sýnt á veggspjöldum. Sýningin stendur yfir á báðum stöðum 11. – 30. nóvember.

Á skjaladaginn 11. nóvember er sýningin í Brekkugötu 17 opin kl. 12:00 – 17:00 og á þeim tíma næstu laugardaga, en aðra virka daga 10:00 – 19:00. Í Ráðhúsinu er sýningin opin virka daga kl. 8:00 – 16:00.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan