Guðfinna Berg Stefánsdóttir er starfsmaður á Amtsbókasafninu á Akureyri. Hún sótti myndlistarnámskeið í Danmörku og sýnir nú verk eftir sig sem hún gerði á þeim tíma. Hér gefur að líta margs konar skissur og teikningar, og auðvitað er Guðfinna tilbúin að ræða um sýninguna ef fólk leitast eftir því.
Sýning á verkum Guðfinnu verður í sýningarsal Amtsbókasafnsins á Akureyri eitthvað fram eftir mars mánuði.