Kvikmyndadeild Amtsbókasafnsins er að fara í gegnum stöðugar breytingar. Nú er nýtt efni nær eingöngu keypt á DVD og því þurfa nokkur myndböndin að hliðra til fyrir mynddiskunum. Verið er að afskrá myndbönd og í mörgum tilfellum verða mynddiska-útgáfur af þeim keyptar á safnið. Síðustu daga hafa verið um 100 myndbönd afskráð og verða þau til sölu næstu daga hjá söluborðinu. Eitt myndband kostar 250 kr. en tíu saman kosta 2000 kr. Komið og kíkið á frábæra titla!
Svo minnum við auðvitað líka á söluborðið með bókunum, en þar er mikið líf og reglulega settar nýjar bækur á borðið til sölu. Enda er hægt að fá bók á 100 kr., tíu bækur á 700 kr., eina kilju á 50 kr., tíu kiljur á 400 kr. - þannig að kostaboðin eru mörg og góð á Amtsbókasafninu.
Gera má einnig ráð fyrir því með vorinu að boðið verði upp á gamla tónlistardiska til sölu, þannig að þið skuluð fylgjast vel með á næstunni.