--------------------------------------------------------------------------------------------------
Nú er að hefjast glæsileg norræn bókasafnavika. Dagskráin er mismunandi í bókasöfnum og skólum um öll Norðurlöndin, en þemað er það sama.
Amtsbókasafnið á Akureyri lætur ekki sitt liggja eftir og er með glæsilega dagskrá (þó við segjum sjálf frá!!). Meðal þess sem verður:
13. nóvember kl. 18:00: Kristín S. Árnadóttir verður með fyrirlestur um norrænar glæpasögur og sérstaka áherslu á Arnald Indriðason. Á meðan verður boðið upp á upplestur í barnadeildinni - á tveimur stöðum!
14. nóvember kl. 14:30: Sögustund fyrir börnin, þar sem lesið verður m.a. upp úr bókinni Ertu skræfa, Einar Áskell?
15. nóvember kl. 17:15: Kvikmyndasýning fyrir börnin: Kalli Blómkvist lítur við í myndinni Spæjarinn Kalli Blómkvist og vinur hans Rasmus. Kl. 18:00 mun svo Stefán Máni lesa upp úr nýjustu bók sinni, Skipinu, sem er hörkuspennandi tryllir. Áætlað er að myndasýningu og upplestri ljúki á sama tíma.
16. nóvember kl. 14:30: Sögustund fyrir börnin (Amma og þjófurinn í safninu og Fróði og allir hinir gríslingarnir). Kl. 18:00 hefst sýning á tveimur norrænum krimma-kvikmyndum.
Alla vikuna verður svo hægt að fá norrænar glæpasögur að láni (eins og alltaf, en nú er lögð ríkari áhersla á þær), nýir hlutverkaleikir eru komnir í útlán og ganga þeir allir út á lausn glæpa, getraunir verða fyrir yngri krakkana og einnig verður daglegur ratleikur fyrir þá eldri (engin aldurstakmörk).