Kæru safngestir!
Amtsbókasafnið á Akureyri verður lokað mánudaginn 16. maí nk., vegna þess að þá er annar í hvítasunnu. Við opnum aftur skv. hefðbundnum tíma þriðjudaginn 17. maí.
Á þriðjudaginn mun svo koma á heimasíðuna frekari frásögn af hinni stórskemmtilegu sýningu Fjölmenntar og fleiri myndir - en sýningin stendur til 31. maí nk.
Við óskum ykkur gleðilegrar hvítasunnuhelgar og við hlökkum til að sjá ykkur fersk aftur á safninu.