Hin árlega ljóðaganga var farin í Garðsárreit í Eyjarfirði, laugardaginn 16. september, og voru það Skógræktarfélag Eyfirðinga, Amtsbókasafnið á Akureyri og Populus tremula sem stóðu að göngunni. Rúmlega 60 gestir mættu og skemmtu sér afskaplega vel.
Steinunn Sigurðardóttir og Sigurður Jónsson lásu ljóð, Helgi Þórsson, Jón Kr. Arnarson og Aðalsteinn Svanur Sigfússon sungu og léku á gítar.
Meðfylgjandi mynd sýnir hluta af því ánægða fólki sem tók þátt í göngunni.
