Amtsbókasafnið og Hof í ritlistarsamstarfi
Amtsbókasafnið og Menningarhúsið Hof vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt. Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.
BÓKAHILLAN
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi
gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í
hverjum mánuði er ákveðið þema.

Vorboðinn ljúfi...
Í maí er þemað; Ljóðabækur. Ljóð eru kjarninn í lífinu. Þau gefa okkur upplifanir og skilning sem við hefðum svo gjarnan viljað orða sjálf en finnum hins vegar í orðum ljóðskáldsins. Okkar dýpstu tilfinningar eða skynjanir sem fá okkur til að svífa hærra og lengra en nokkur orð fá lýst – nema í ljóði...
Gleðilegt sumar!