Enn og aftur er komið að því að Fjölmennt sýni verkin sín á Amtsbókasafninu og sem fyrr er það gleðin og fjölbreytnin sem höfð eru að leiðarljósi. Á síðasta ári var sýningin með afrísku ívafi en núna er það Indland sem hefur veitt innblástur.
Það er bæði skemmtilegt og gefandi að kynnast menningu annarra landa og skerpir skilning okkar á því að framtíð okkar veltur ekki á einsleitni fyrri kynslóða heldur fjölmenningu komandi kynslóða. Það er verkefni sem mætir okkur öllum og lykillinn að betri heimkynnum.
Að þessu sinni er sýningin hluti af viðburði sem kallast List án landamæra og með henni vill Fjölmennt leggja sitt af mörkum við að gera einstaklinga með fötlun sýnilegri í samfélaginu og vinna gegn fordómum í þeirra garð. Tíðarandinn er sýnilegt og ósýnilegt umhverfi okkar og við getum öll haft áhrif á hann. Setjum okkur háleit markmið og leggjum okkar að mörkum þannig að allir einstaklingar fái að njóta sín.
Virðingarfyllst, Brynhildur Kristinsdóttir