Kvikmyndasýning sem hluti af Kirkjulistaviku kl. 20.00. - To verdener sýnd 4. maí kl. 20:00

Sýnd verður myndin „To verdener“. Þegar sautján ára stúlka úr trúfélagi votta Jehóva í Danmörku verður ástfangin af strák sem stendur fyrir utan það neyðist hún til að velja á milli tveggja heima. Kvikmyndin vakti mikið umtal þegar hún var frumsýnd á síðast ári en hún er byggð á sönnum atburðum.
Bjarni Randver Sigurvinsson, guðfræðingur, flytur stuttan inngang um myndina fyrir sýningu og stjórnar umræðum að henni lokinni. Myndin er á dönsku en með enskum texta. Aðgangur ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan