Kerfið komið í gang - - þetta gengur ágætlega!

Það er hægt að gleðjast yfir því að nýja útgáfa bókasafnskerfisins er komin í gang. Fyrir starfsmenn er þetta mun einfaldara í notkun og nokkrir hlutar hafa verið betrumbættir til muna, og allt kemur þetta vonandi til baka til notenda, ykkar safngestanna.

Þið getið haldið áfram að kíkja á lánasögu ykkar á netinu, framlengt og tekið frá, allt eins og áður var.

Hins vegar eru enn smá hnökrar sem eru í leiðréttingu, og það þýðir að lítið nýtt efni kemur inn næstu dagana. Einnig fá þeir sem vilja ný bókasafnskort einungis bráðabirgðakort, sem eru þó nothæf (og breyta engu fyrir notandann). Við getum ekki prentað út yfirlit yfir útlánin, en þau er hægt að sjá á netinu. Við getum ekki sent ennþá rukkanir til fólks með safnefni í vanskilum, en eins og áður sagði þá eru þetta hnökrar sem ættu að hverfa næstu 1-2 vikurnar.

Eins og áður sagði, þá hefur þetta nær engin áhrif á hinn hefðbundna notanda, þannig að nú er um að gera að drífa sig á bókasafnið og fá bækur og myndir og tónlist ... og eiga góðan dag!

Starfsfólk Amtsbókasafnsins



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan