Hinn feykivinsæli Jón Gnarr hefur skrifað „skáldaða ævisögu“ sem hann nefnir Indjánann. Sjálfur segir hann um bókina sína:
„Margir spyrja sig eflaust hvort þesssi bók sé ævisaga eða skáldsaga. Hún er bæði. Hún er ekki alveg sönn. Það er þó engin bein lygi í henni. Ég trúi ekki á lygi.“
Jón mun koma á Amtsbókasafnið fimmtudaginn 23. nóvember kl. 17:15 og lesa upp úr bókinni ásamt því að fjalla um hana nánar, og eflaust leyfa gesti og gangandi að spyrja sig spjörunum úr.