Síðustu ár, nánar tiltekið í desember ár hvert, hefur Amtsbókasafnið sýnt jólasveinana flottu frá Jólagarðinum í sýningarborðum eða -skápum. Árið 2008 er engin breyting þar á, en okkur á Amtsbókasafninu barst höfðingleg gjöf frá Benedikt Grétarssyni í Jólagarðinum:
Þessir frægu jólasveinar eiga nú 10 ára afmæli í ár, og í tilefni þess ákvað Benedikt að færa okkur jólasveinana þrettán, ásamt Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn, að gjöf.
Þessi gjöf er nú komin á góðan stað í sýningarskáp nálægt afgreiðslu Amtsbókasafnsins og verður þar fram yfir 6. janúar á næsta ári.
Amtsbókasafnið sendir Benedikt og Jólagarðinum kærar jólakveðjur og þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.