Ítalskt vor — La primavera - vika með sérstakri áherslu á allt ítalskt!

Laugardaginn 29. apríl nk. hefst svokolluð „ítölsk vika“, þar sem lögð er áhersla á allt sem er ítalskt. Þessi vika hefur hlotið nafnið „Ítalskt vor - La primavera“ og er samstarfsverkefni nokkurra aðila í bænum: Amtsbókasafnið á Akureyri og Borgarbíó munu sýna ítalskar kvikmyndir, Amts-Café, Friðrik V og Kaffi Karólína verða með ítalskar áherslur á sínum matseðlum, Gallerý Jónasar Viðars verður með ítalska sýningu, Nettó verður með áherslu á ítalskar vörur o.fl. o.fl. Nákvæm dagskrá:

Amtsbókasafnið, 29. apríl kl. 16:00
Sérstök opnun á þessari ítölsku viku þar sem einna hæst ber heimsókn ræðismanns Ítalíu á Íslandi og stofnun félagsins „Vinir Ítalíu“. - Léttar veitingar í boði.

Amtsbókasafnið, 29. apríl – 6. maí
- Ferðakynningar
- Kynning á ítölskum safnkosti (bækur, myndir o.fl. ...)
- Kvikmyndasýningar (sjá dagatal fyrir nánari dagsetningar)

Borgarbíó, 2.–4. maí
- Kvikmyndasýningar (sjá dagatal fyrir nánari dagsetningar)

Gallerý Jónasar Viðars, 29. apríl kl. 17:30 og 30. apríl
- Minningar frá Ítalíu (Jónas Viðar, Rósa Júlíusdóttir, Stefán Boulter)
Léttar veitingar í boði.

Ketilhúsið, 3. maí kl. 17:00
- Agnieszka og Pawel Panasiuk leika ítalska tónlist fyrir selló og píanó.

Allir viðburðir eru opnir og án endurgjalds!!

Friðrik V. og Kaffi Karólína, 29. apríl – 6. maí
- Ítalskur matseðill og vínlisti

Amts-Café, 2.–5. maí
- Ítalskar súpur

Nettó, 29. apríl – 6. maí
- Ítölsk vörukynning

Bakaríið við brúna, 29. apríl – 6. maí
- Ítölsk brauðkynning



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan