Það má með sanni segja að það hafi verið nóg að gera á Amtsbókasafninu síðastliðið laugardagskvöld. Þá var einmitt opið frá 19:00-23:30, og var það liður í Akureyrarvökunni. Dagskrá Amtsbókasafnsins klikkaði ekki og á þessu kvöldi komu rúmlega 300 manns og tóku þátt í ljóðahlaðborði, púslljóði, hlustuðu á íslenska geisladiska og fengu lánaðar kvikmyndir ókeypis!
Já, þetta tókst með eindæmum vel, og það verður gaman að sjá hvernig dagskrá safnsins verður á Akureyrarvökunni að ári liðnu. Ég held það verði ekkert slor ... ! En hér má sjá myndir frá þessari nýliðnu vöku:
|
Ljóðahlaðborðið var líka vinsælt, en þar krotuðu margir gestir hugsanir sínar - dúkurinn verður auðvitað geymdur á safninu! |
|---|
|
Þegar leið á kvöldið mátti sjá ljóðlínur myndast á töflunni góðu. |
|
|---|---|
|
Mynddiskarnir voru mjög vinsælir þetta kvöld, og myndböndin líka. |
Hann var stöðugur straumurinn af fólki allt kvöldið, og aldrei dauð stund í afgreiðslunni. |