GLEÐILEGT SUMAR!

Kæru safngestir.

Við hér á Amtsbókasafninu óskum ykkur gleðilegs sumars og þökkum kærlega fyrir nýliðinn vetur. Við hlökkum til að sjá ykkur mikið í sumar! Meðfylgjandi eru myndir af bæjarstjórnarfundi sem haldinn var hér á safninu 19. apríl sl. og af móttöku menningarmálanefndar sem haldin var á sumardaginn fyrsta.

  

Bæjarstjórn mun fá að halda fundi sína í Amtsbókasafninu út maí og mæltist þessi fyrsti fundur vel fyrir.

Ekki var hægt að sjá annað en að bæjarstjórn hafi líkað þessi aðstaða á Amtsbókasafninu.

Það er alltaf líf á Amtsbókasafninu. Sumardaginn fyrsta var haldin móttaka menningarmálanefndar Akureyrarbæjar og þar afhentar ýmsar viðurkenningar.

Guðmundur Jónsson arkitekt fékk viðurkenningu fyrir hið nýja húsnæði Amtsbókasafnsins.



Gleðilegt sumar!



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan