Það eru til rúmlega þúsund geisladiskar á Amtsbókasafninu, með alls kyns tónlist - erlendri og innlendri. Við á Amtsbókasafninu fáum reglulega til okkar geisladiska og teljum okkur eiga ansi gott og fjölbreytt úrval til útláns.
Við höfum gott safn af jass- og blústónlist, þjóðlegri tónlist frá ýmsum heimshornum og svo erum við að byrja að byggja upp safn kvikmyndatónlistar. Við eigum líka gott úrval af mynddiskum með klassískri tónlist. Verið óhrædd við að spyrja. Einnig er hægt að fá sendan til sín lista yfir geisladiskaeign Amtsbókasafnsins, með því að senda póst á thgj@akureyri.is (þetta er einnig hægt um mynddiskaeign Amtsbókasafnsins), þannig er hægt að fylgjast með stækkun safnkostsins.
Nýir innlendir geisladiskar eru t.d.: Ég skemmti mér í sumar (Guðrún Gunnars og Friðrik Ómars halda skemmtilegu samstarfi áfram), Vel sjóaður með Ragga Bjarna í fantaformi og svo Íslensku ástarlögin með okkar helstu söngdívum.
Nýir erlendir geisladiskar eru t.d.: Oral Fixation, vol. 2 (glæsileg plata með Shakira hinni suðrænu, ein vinsælasta plata ársins í heiminum), Black Holes & Revelations með Íslandsvinunum Muse (en þetta er af mörgum talin þeirra besta plata), Under the Iron Sea með Keane (en þeir slógu í gegn með fyrstu plötu sinni sem kom út í fyrra og er auðvitað til hér á safninu) og On an Island með David Gilmour.
Verið óhrædd að spyrja um hvað til sé eða að hafa samband og fá lista sendan til ykkar. Fyrir áhugasama er hægt að bjóða upp á mánaðarlegar sendingar með viðbótum í geisladiskasafnið. (thgj@akureyri.is)