Gegnir.is - Mínar síður

Glöggir bókasafnsgestir hafa tekið eftir því að hægt er að fara á netið núna og sjá yfirlit yfir það sem maður er með í láni, framlengja og panta. Þessi þjónusta við notendur er alltaf að aukast. Frammi við afgreiðsluborðið liggja miðar sem sýna hvernig hægt sé að gera þetta. En þeir fjölmörgu aðdáendur þessarar heimasíðu geta einnig náð í rafrænt eintak af þessum miða.

Gegnir.doc

Ýtið á reitinn fyrir ofan og þá getið þið hlaðið niður viðkomandi skjali.

Í stuttu máli eru leiðbeiningarnar þannig:
1. Farið á netið og sláið inn "gegnir.is" eða www.gegnir.is
2. Til vinstri skuluð þið slá inn kennitölu ykkar
3. Þar fyrir neðan sláið þið inn leyniorðið (síðustu 4 stafir í kennitölu)
4. Veljið "Norðurland" í reitnum "Velja safnhóp"
5. Ýtið á reitinn "Innskrá".
6. Þá verður reiturinn "Mínar síður" upplitaður og tilbúinn til notkunar.
7. Ýtið á hann og veltið fyrir ykkur möguleikunum, t.d. breytið lykilorði.
8. Þegar þið eruð búin, ýtið á reitinn "Hætta" ofar á síðunni.

En hlaðið endilega niður skjalinu. Við erum svo auðvitað alltaf boðin og búin til að veita aðstoð.

Gegnir.doc



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan