Gegnir - athugið!

Öflugt bókasafnskerfiHluti af aukinni þjónustu Amtsbókasafnsins er að innleiða nýtt bókasafnskerfi. Starfsmenn safnsins keppast nú við að tengja eintök við stóra grunninn sem Gegnir er, þannig að hægt verði að sjá í gegnum www.gegnir.is hvort viðkomandi titill sé til eða ekki, hversu lengi sé hægt að fá hann lánaðan o.s.frv. Þetta hefur tekið tíma og heldur áfram í nokkra mánuði. En þar sem sjálft bókasafnskerfið er ekki komið í notkun á safninu, þá sýnir listinn sem birtist á netinu ekki hvort viðkomandi titill sé inni eða hvort hann sé í útláni. Þessi hluti kerfisins kemst ekki í fulla notkun fyrr en kerfið sjálft hefur verið innleitt á safninu. Það verður auglýst rækilega. Þangað til biðjum við gesti um að sýna okkur biðlund og athuga með því að hringja í okkur, eða líta við!, hvort viðkomandi bók sé inni eða ekki.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan