Fyrirlestur: Svipmyndir úr sögu hljóðritunar - með áherslu á norðlensk hljóðrit

Njáll Sigurðsson mun halda erindi á Amtsbókasafninu á Akureyri

laugardaginn 4. nóvember kl. 13:00

Hin stórglæsilega sýning "Frá vaxhólkum til geisladiska" hefur vakið mikla athygli, og nú líður að lokum hennar. Í tilefni af því mun Njáll Sigurðsson halda síðari fyrirlestur sinn um sögu íslenskrar hljóðritunar laugardaginn 4. nóvember kl. 13:00.

Eins og sjá má á myndinni hefur hljóðritunartæknin breyst allmikið á þeim 100 árum sem hún hefur verið við lýði hér á ÍslandiNjáll mun skjóta inn efni með norðlenskum flytjendum, einkum af gömlum plötum með söngfólki, kórum og hljóðfæraleikurum. Hann er einna fróðastur manna um þetta efni hér á landi og áhugasamir einstaklingar ættu ekki að láta sig vanta á þennan fyrirlestur!

Saga íslenskrar hljóðritunar, með norðlenskri áherslu!


Amtsbókasafnið á Akureyri
laugardagurinn 4. nóvember kl. 13:00



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan