Frábær tónlist á Amtsbókasafninu! - Margar af vinsælustu og bestu plötum heimsins finnurðu hér!

Tónlistardeildin er að ganga í gegnum breytingarskeið. Nýjar merkingar eru settar á geisladiskana, og þeim verður svo raðað í ákveðna röð og niðurstaðan verður notendavænni deild, þar sem jass, rokk, íslensk tónlist, erlend tónlist, kvikmyndatónlist, óperur og sinfóníur o.fl. fá að njóta sín sérstaklega.

Nýir geisladiskar koma inn í safnið reglulega og má m.a. finna þessa hérna á safninu, en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera á meða 10-20 vinælustu geisladiska í Evrópu og heiminum öllum um þessar mundir.

 

Snillingurinn Bob Dylan hefur gefið út tugi platna, en þrátt fyrir að vera ekki mjög hrifinn af stafrænni tækni þá er nýja platan hans að fá alveg glimrandi dóma 
4,5 af 5 hjá Allmusic.com

 Beck er ekki gamall maður en afkastar miklu. Nýjasta platan hans hefur fengið fína dóma og hann á alltaf sinn trausta aðdáendahóp
4 af 5 hjá Allmusic.com

Söngkonan Christina Aguilera er af mörgum talin hæfileikaríkasta söngkona sinnar kynslóðar og hér er á ferðinni tvöföld plata með henni sem fengið hefur frábæra dóma 
4,5 af hjá Allmusic.com

James Morrison er ekki nema 22 ára gamall en þykir ótrúlega fjölhæfur, þroskaður og heilsteyptur 
Allmusic.com ?


Komið endilega á safnið og kíkið á fleiri. Einnig fá þeir sem skrá sig á póstlistann fréttir af þeim plötum sem koma nýjar inn, og einnig nýjan heildarlista yfir geisladiskaeign safnsins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan