Frá vaxhólkum til geisladiska - hljóðritasýning í Amtsbókasafninu á Akureyri

Föstudaginn 13. október kl. 17:00 verður sýningin „Frá vaxhólkum til geisladiska“ opnuð í Amtsbókasafninu á Akureyri í tilefni af aldarafmæli hljóðritunar á Íslandi.

Árið 2003 voru 100 ár liðin frá því að Jón Pálsson bankagjaldkeri og organisti hóf að safna þjóðfræðaefni með hljóðritunum á vaxhólka. Í tilefni af því aldarafmæli var sett upp sýning haustið 2004 undir yfirskriftinni „Frá vaxhólkum til geisladiska“. Sýningarstaðir voru tveir: Í Þjóðarbókhlöðu var áhersla lögð á sögu hljómplötunnar og íslenskrar hljómplötuútgáfu frá upphafi 20. aldar. Í Útvarpshúsinu var rakin þróun hljóðritunartækni og tækja í 100 ár.

Eins og sjá má á myndinni hefur hljóðritunartæknin breyst allmikið á þeim 100 árum sem hún hefur verið við lýði hér á ÍslandiVið undirbúning aldarafmælisins kom fram hugmynd um að setja síðar upp framhaldssýningu í smækkaðri mynd á þeim stöðum þar sem Ríkisútvarpið rekur svæðisútvarpsstöðvar. Fyrsta tilraun af því tagi er hljóðritasýning, sett upp í Amtsbókasafninu á Akureyri í samstarfi við ýmsa aðila, stofnanir og einstaklinga nyrðra og syðra.

Sýningin verður opnuð föstudaginn 13. október kl. 17:00 og í tengslum við hana mun Njáll Sigurðsson halda tvo fyrirlestra sem hann nefnir „Svipmyndir úr sögu hljóðritunar“. Verður sá fyrri haldinn laugardaginn 14. október kl.13:00 og síðari verður laugardaginn 4. nóvember kl. 13:00 og fjallar hann að hluta um norðlensk hljóðrit. Báðir fyrirlestrarnir verða haldnir í Amtsbókasafninu á Akureyri.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan