Fjölmennt - sýning á Amtsbókasafninu

Eins og fram kom á heimasíðunni í síðustu viku, þá var opnuð á Amtsbókasafninu glæsileg handverks- og myndlistasýning Fjölmenntar 2005. Opnun sýningarinnar var mjög flott og komu margir gestir á hana. Þegar inn í húsið var komið mátti reglulega heyra mikinn trommuleik en það voru tónlistarnemar frá Fjölmennt í Reykjavík sem spiluðu, sem og gestatrommuleikari frá Afríku, Nicholas Cutjoe að nafni. Formaður Fjölmenntar, Bjarni Kristjánsson, hélt ávarp þar sem hann óskaði nemunum til hamingju með sýninguna og gladdist yfir þeim fjölda sem þarna var saman kominn. Boðið var upp á svalardrykki og greinilegt að hrifning allra viðstaddra var mikil.

Sýningin hefur þessa fyrstu viku vakið mikla athygli og vert að ítreka það að hún stendur fram til næstu mánaðamóta. Hér fyrir neðan má svo líta nokkur listaverkanna og tónlistarnemana fyrrnefndu að verki.

 

Þetta risastóra málverk er eitt fjölmargra listaverka sem hægt er að sjá á sýningu Fjölmenntar í Amtsbókasafninu á Akureyri

 

 Á opnun sýningarinnar var mikið um trommuleik, hér má sjá nokkra tónlistarnema úr Fjölmennt í miðjum flutningi.

 

 Hér má sjá einn sýningarkassanna sem er að finna á sýningu Fjölmenntar 2005 á Amtsbókasafninu.

 





Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan