Rithöfundarnir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Kristín Helga Gunnarsdóttir mættu hér á fimmtudagskvöldið og lásu upp úr nýjustu verkum sínum, þ.e. þýðingum Aðalsteins á ljóðum bandaríska metsöluskáldsins Hal Sirowits, Sagði pabbi og Sagði mamma, og Kristín Helga sagði frá nýjustu bókinni um Fíasól, Fíasól á flandri.
Skemmst er frá því að segja að aðsóknin var frábær. Hátt á sjöunda tug gesta voru samankomnir, blanda af börnum og fullorðnum. Aðalsteinn tók svo lagið í lokin og fékk salinn til að kyrja með í laginu um vandræðaköttinn Krúsilíus.
Stemmningin var yndisleg, en því miður urðu flestar myndirnar sem teknar voru ekki í lagi. Þær sem hér fylgja sýna þó stóran hluta af gestunum og Aðalstein að lesa upp, og Kristín Helga horfir á.