Ertu mikið fyrir ...

... bækur?
Þá erum við svarið! Sem skylduskilasafn eigum við eintak af öllum bókum sem prentaðar eru á Íslandi. Hægt er að lesa þær á safninu. En svo eru auðvitað nýjustu bækurnar alltaf til útláns og við kappkostum að koma þeim í útlánakerfið sem fyrst.

... tónlist?
Þá erum við svarið! Reglulega koma til okkar sendingar með nýjustu diskunum og meðal glænýrra hljómdiska má nefna tónlistina úr myndinni um Johnny Cash - Walk the Line - en þar fara Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon á kostum í söng sínum. Einnig erum við með tónlistina úr Memoirs of a Geisha eftir meistara John Williams og svo erum við líka með Óskarsverðlaunatónlistina úr myndinni Brokeback Mountain.

... kvikmyndir?
Þá erum við svarið! Við fáum mánaðarlega til okkar blaðið Myndir mánaðarins og veljum úr álitlegustu myndirnar. Einnig reynum við að kaupa klassískar og sígildar myndir og hafa úrvalið sem fjölbreyttast. Barnamyndirnar eru einna vinsælastar hjá okkur og má m.a. finna myndir sem gerðar eru eftir sögum Astrid Lindgren.

... upplýsingar?
Þá erum við svarið!

... tímarit?
Þá erum við svarið!

Já, við erum svarið við mörgu. Komið endilega og lítið við, gæðið ykkur á góðgætinu hennar Halldóru á Amts Café og kippið með ykkur heim nokkrum bókum, myndum, tónlist, tímaritum ... o.s.frv.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan