Safngestir hafa án efa tekið eftir því að hillurnar sem hýsa nýjustu bækurnar, svokallaðar jólabækur, eru oft ansi tómlegar. En það er bara gott mál, því mikil er aðsóknin og þannig viljum öll hafa það. Fólk nýtir sér æ oftar netið til að panta bækur og framlengja, og síðan er beðið eftir símtali frá bókasafninu: "Já, bókin sem þú pantaðir er komin í hús ..." Og daglega bætast við nýir titlar, þannig að safngestirnir verða að fylgjast vel með.
Tónlistardeildin hefur farið í gegnum mikla yfirhalningu. Búið er að merkja allt efni deildarinnar upp á nýtt og raða upp í ákveðna flokka. Með þessu móti er verið að gera efnið sjáanlegra og vonandi verður þetta til þess að auka útlánin í þeirri deild. Það er metár í ár hvað varðar innkaup og skráningar í tónlistardeildina, og hún gerir ekkert nema að vaxa og dafna. Klassískir titlar, nýjustu diskarnir, Elvis Presley, Christina Aguilera, Andrea Bocelli, Laddi ... allt er þetta hér, og svo miklu miklu meira ... (Hægt er að fá yfirlit yfir þá diska sem eru til á safninu með því að senda póst á thgj@akureyri.is (Doddi) ).
Jólin eru að koma, snjórinn breiðir úr sér yfir fallega bæinn okkar og jólaljósunum fjölgar. Amtsbókasafnið verður með sýningu á alls kyns munum tengdum jólunum í samvinnu við Minjasafnið og Héraðsskjalasafnið.
Og já, ... auðvitað mun öll helsta jólatónlistin vera til hjá okkur!!
Amtsbókasafnið er staðurinn!