Undanfarin fimmtudagssíðdegi hafa verið helguð dauðasyndunum sjö á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Nú er röðin komin að fimmtu syndinni, letinni.
Það er Þorvaldur Þorsteinsson listamaður og rithöfundur sem ætlar að gera henni skil.
Þorvaldur er væntanlega þekktastur af verkum sínum á sviði myndlistar og ritlistar, en undanfarin ár hefur hann í æ ríkara mæli snúið sér að fyrirlestrahaldi um lífsins gagn og nauðsynjar.
Þessa dagana er Þorvaldur staddur á Akureyri þar sem hann vinnur að uppsetningu á frumsömdu leikriti sínu: "Lífið notkunarreglur", en auk þess að vera höfundur verksins hannar hann einnig leikmynd og búninga.
Fyrirlesturinn hefst eins og undanfarna fimmtudaga klukkan 17:15, en gott er að vera tímanlega, þar sem fullt hefur verið út úr dyrum á alla fyrirlestrana.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Félags áhugamanna um heimspeki á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Amtsbókasafnsins.