Bangsavikan hófst mánudaginn 23. október og henni lýkur með bangsadeginum 27. október. Dagskráin verður vegleg að vanda á Amtsbókasafninu þessa vikuna, leikskólarnir koma í heimsóknir og bangsi tekur á móti þeim. Börnin eru hvött til þess að skrifa sínar eigin bangsasögur og setja í þar til gerðan kassa á safninu, sagðar eru sögur og sýndar myndir á nýju sýningartjaldi í barnadeildinni.
Frekari upplýsingar veitir hún Ingibjörg barnabókavörður (ingibjorg@akureyri.is -- s. 460 1257).