Bæjarstjórnarfundur á Amtsbókasafninu 19. apríl 2005 - Sumardaginn fyrsta (21. apríl 2005) verður safnið lokað

Það er alltaf mikið líf á Amtsbókasafninu. Sýningar af öllum gerðum, kaffihúsastemmning og auðvitað útlán og lestur á fullu.

En á morgun, þriðjudaginn 19. apríl 2005 kl. 16:00, verður haldinn fundur bæjarstjórnar Akureyrar hér á Amtsbókasafninu, nánar tiltekið í kaffiteríunni. Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og þessi verður engin undantekning. Þetta þýðir það hins vegar að ekki verður hægt að fá aðgang að tölvunum meðan á fundinum stendur, þ.e. frá 16:00-19:00. Við skorum á fólk að kíkja á fundinn.

 

Svo viljum við minna safngesti á Amtsbókasafnið verður lokað fimmtudaginn 21. apríl nk., en þá er einmitt sumardagurinn fyrsti.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan