Miðvikudagskvöldið 5. apríl og klukkan var rúmlega átta. Andri Snær var kynntur á sviðið og innan skamms var hann með myndum sínum (í gegnum skjávarpa) og orðum búinn að fá salinn á sitt band. Fyrirlestri Andra lauk kl. níu og hóf hann þá að árita bækur sem Penninn-Bókval var með til sölu frammi í anddyri Samkomuhússins. Um 150 manns mættu á fyrirlesturinn og Andri Snær áritaði um 30 bækur.
Fyrirlesturinn gekk ekki endilega út á það að fá fólk til að taka afstöðu, heldur meira til að fá fólk til að hugsa. Hversu öflugar eru hugmyndir? Hver er íslenskur raunveruleiki? Hvernig viljum við að Íslandi verði 2093?
Þessar og fleiri spurningar vakna líka þegar fólk les bók Andra Snæs.
Fólk var almennt mjög ánægt með fyrirlesturinn og þetta framtak hjá Amtsbókasafninu á Akureyri í samvinnu við Eddu útgáfu. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Að lokum ber að koma þakklæti til Leikfélags Akureyrar fyrir mjög gott samstarf, Menntaskólanum á Akureyri fyrir að lána sýningartjald (sem reyndist svo ekki vera notað) og síðast en ekki síst fær Álnabær kærar þakkir fyrir að lána okkur nógu stóra hvíta gardínu sem var hægt að nota sem sýningartjald.
Frábær fyrirlestur hjá frábærum höfundi! Og nú er bara að kaupa bókina eða fá hana leigða á bókasafninu!