Amtsbókasafnið: lokað fyrir hádegi - föstudaginn 10. mars og mánudaginn 20. mars

Við viljum benda safngestum á að vegna námskeiðs fyrir starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri verður safnið lokað fyrir hádegi föstudaginn 10. mars og mánudaginn 20. mars. Báða þessa daga verður afgreiðslutími safnsins því:

13:00-19:00

Við vonum að safngestir taki þessu vel því niðurstaðan verður vonandi enn betra starfsfólk og þar af leiðandi enn betra safn!



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan