Það hefur ekki farið framhjá neinum síðustu daga að úr eldhúsinu við kaffiteríuna okkar á Amtsbókasafninu er tekin að berast yndisleg matar- og bökunarlykt á ný.
Nú hefur hún Silla tekið við rekstrinum á Amts-Café og mun hún vera með heita rétti í hádeginu (11:30-14:00). Á föstudögum munu verða sendir út matseðlar vikunnar á eftir til þeirra sem óska eftir því (skráið ykkur á póstlista hjá thgj@akureyri.is og takið fram að þetta sé vegna matseðilsins). Einnig verður matseðillinn alltaf aðgengilegur hérna á síðunni, með því að klikka á "Amts-Café" hnappinn hér til hægri.
Silla býður einnig upp á gómsætar kökur, smurt brauð og salat. Og það er ábót á súpurnar!
Hingað til hafa undirtektir verið mjög góðar og fyrstu dagarnir gengið vel, enda um miklar kræsingar að ræða, en við skorum á gesti og gangandi að kíkja til Sillu á Amts-Café í hádeginu og fá sér eitthvað að borða, narta svo í sætt góðgæti og sötra kaffi með, um leið og nýjustu dagblöðin og tímaritin eru lesin.
Verði ykkur að góðu - við sjáumst á Amts-Café!