Þó svo að sumarið sé tími mikilla ferðalaga og fríi frá vinnu, þá verður alltaf opið hjá okkur 10:00-19:00 á virkum dögum í sumar.
Við höldum áfram að fá og skrá inn nýjar bækur, tónlistardiskunum fjölgar jafnt og þétt, og kvikmyndirnar eru alltaf til staðar. Auðvitað höfum margmiðlunarefni líka, sumarlestur fyrir börnin, góða aðstöðu fyrir unglingana, sama góða og hljóðláta lestrarsalinn og auðvitað kaffiteríuna, með Halldóru í essinu sínu í súpunum í hádeginu - ásamt öðru góðgæti.
Erlendum ferðamönnum fjölgar yfir sumarið og þess vegna höfum við útbúið enska ör-útgáfu af vefnum okkar (English). Vonandi verður þetta til að auka þjónustuna enn meir, og ef þið þekkið einhverja erlenda einstaklinga sem hafa áhuga á að kynnast safninu betur, bendið þeim endilega á þessa síðu.
Skemmtilegar staðreyndir:
- Það eru margfalt fleiri titlar til á bókasafninu heldur en hár á höfði vefstjórans.
- Það rignir aldrei inni á Amtsbókasafninu.
- Útlán á mynddiskum eru nú orðin mun meiri en útlán á myndböndum.
- Enginn af þeim sem eru að spila á HM2006 hafa komið á Amtsbókasafnið! (Samt eigum við bækur um mörg landanna...)
- Bækur Arnaldar Indriðasonar komast aldrei upp á 2. hæð í útlánadeildina, sökum vinsælda.
- Amtsbókasafnið á Akureyri skrifað afturábak: iryerukA á ðinfasakóbstmA
Sjáumst hress og kát á safninu!!