Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum, að næstkomandi laugardag verður viðamikil dagskrá um allan bæinn, undir nafninu Akureyrarvaka. Amtsbókasafnið á Akureyri verður með opið hús þennan laugardag, nánar tiltekið 26. ágúst kl. 19:00-23:30. Upp á þetta verður boðið:
BÓKABORÐ
Hér mun almenningur geta fengið borð/aðstöðu hjá safninu til að koma með og selja sínar eigin bækur, mynda skemmtilega bókamarkaðsstemmningu, og ef veður leyfir, þá er tilvalið að hafa þetta úti. Hringið í 460 1250 og spyrjið um Dodda til að fá nánari upplýsingar og panta borð.
ÓKEYPIS MYNDDISKAR OG MYNDBÖND
Finnst þér gaman að horfa á góða kvikmynd? Er freistandi að fá sér nokkrar barnamyndir og eiga þægilegan sunnudagsmorgun? - Ef þú svarar þessu játandi, eða hefur yfirhöfuð mikinn áhuga á kvikmyndum, þá skaltu koma á safnið á þessum tíma og fá myndir ókeypis! Já, ókeypis!! Og það má taka eins mikið og fólk treystir sér til að horfa á þar til á mánudag 28. ágúst, því þá þarf að skila öllu efninu (annars þarf að borga sektir).
LJÓÐAHLAÐBORÐ og KLIPPILJÓÐ
Á safninu verður langborð með hvítum dúk þar sem hægt verður að skrifa sín eigin ljóð eða uppáhaldsljóðin og mynda þannig hlaðborð af sannkölluðu ljóðrænu góðmeti! --- Einnig verðum við búin að ljósrita nokkur ljóð og klippa niður í orð sem gestir geta leikið sér að festa upp á tilkynningatöflurnar. Munu upphaflegu ljóðin birtast eða verður kannski til einhver ný meistarasmíð?
BORÐSPIL
Ef þér finnst gaman að spila spil einsog Trivial Pursuit, eða Friends-spilið, eða bara hvað spil sem er, og vilt breyta um umhverfi, þá er um að gera að koma á Amtsbókasafnið með spilið. Við munum bjóða upp á aðstöðu fyrir hópa til að spila.
INTERNET
Við verðum með ókeypis aðgang að internetinu (for foreigners: free internet between 19:00-23:30 on August 26th!) og fólk þarf ekki að sýna skírteinin sín. En hver og einn getur bara fengið klukkutíma.
ÍSLENSKIR GEISLADISKAR
Safnið hefur verið duglegt að kaupa íslenska geisladiska síðustu misseri og munu nokkrir þeirra vera spilaðir á safninu á þessum tíma.