Rithöfundarnir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Kristín Helga Gunnarsdóttir verða með dagskrá á Amtsbókasafninu á Akureyri
fimmtudaginn 2. nóvember kl. 20:00

Í dagskránni flytja þau skemmtilega mixtúru úr nýjustu verkum sínum, Aðalsteinn Ásberg les úr þýðingum sínum á ljóðum bandaríska metsöluskáldsins Hal Sirowitz – Sagði pabbi og Sagði mamma - en Kristín Helga segir frá hinni kostulegu Fíusól og uppátækjum hennar og les úr nýjustu bókinni Fíasól á flandri.
Auk kynninga á fyrrnefndum verkum flytur Aðalsteinn tónlist, en dagskránni í heild er ætlað að höfða til allra aldurshópa og vera fjölskylduvæn fram í fingurgóma.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!