Ábendingar um fallega garða

Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins.
Á Akureyrarvöku, þann 28. ágúst, mun Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri veita viðurkenningar fyrir góðan árangur í eftirfarandi flokkum:

  • Flokkur nýrri garða.
  • Flokkur eldri garða.
  • Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa.
  • Flokkur stofnana.

Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals, aðlaðandi götumyndar o.fl.

Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði en fyrr eru nefnd og veitt viðurkenningar samkvæmt því.

Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum, ef sýnt þykir að enginn standist ofangreindar viðmiðanir

Tekið er á móti ábendingum í netfangi verkefnastjóra umhverfismála, (Jón Birgir Gunnlaugsson), jbg@akureyri.is frá 20. ágúst til og með 27. ágúst og í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar í síma 460-1000. 


Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan