Orlofssumar 2021
Almennt
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.
Sumarorlofstími er frá 15. maí til 30. september ár hvert.
Yfirmaður ákveður hvenær orlof skuli tekið í samráði við starfsmann en skylt er að verða við óskum starfsmanns ef því verður við komið.
Til orlofsdaga telja aðeins virkir dagar.
Orlofsréttur er 30 dagar eða 240 stundir miðað við fullt starf. Ávinnsla skal vera hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Þeir starfsmenn sem samkvæmt skriflegri ósk vinnuveitenda fá ekki fullt orlof á sumarorlofstímabili, skulu fá 25% lengingu á þeim hluta orlofstímans sem veittur er utan framangreinds tíma.
Stöðu orlofs og ávinnslur er hægt að skoða í vinnustund - Sjá leiðbeiningar í pdf hér
Orlof og stytting vinnuvikunnar
30.04.2021 - 14:19
Lestrar 106