Fræðslunefnd Akureyrarbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna náms sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar á árunum 2008-2009.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2007. Umsóknir skal senda til starfsmanns fræðslunefndar, Fjólu Bjarkar Jónsdóttur, Geislagötu 9, 600 Akureyri, á þessu umsóknareyðublaði.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel "Samþykkt um styrki til námsleyfa sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar" á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Rétt er að benda á að með umsókn um styrk skal fylgja vottorð um samþykki yfirmanns samkvæmt ofangreindri samþykkt.