Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Staðgreiðsla 2018

Staðgreiðsla 2018

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út tilkynningu með upplýsingum um staðgreiðslu 2018 sem gildir frá og með 1. janúar 2018. Staðgreiðsluprósentur og þrep einstaklinga verða eftirfarandi: • 36.94% af tekjum 0 - 893.713 kr. • 46,24% af tekjum yfir 893.713 kr. Persónuafsláttur verður 53.895 kr. á mánuði. Tryggingagjald helst óbreytt 6,85%
Lesa fréttina Staðgreiðsla 2018
Fyrirkomulag útborgana um áramót

Fyrirkomulag útborgana um áramót

Fyrirkomulag útborgana um áramót er sem hér segir: Föstudagurinn 29. desember 2017. Eftirágreiddir: Fá greidd mánaðarlaun vegna desember ásamt yfirvinnu og álag fyrir tímabilið 13. nóvember – 12. desember 2017. Fyrirframgreiddir: Fá greidda yfirvinnu og álag fyrir tímabilið 13. nóvember – 12. desember 2017. Þriðjudagurinn 2. janúar 2018. Fyrirframgreiddir: Fá greidd mánaðarlaun vegna janúar 2018.
Lesa fréttina Fyrirkomulag útborgana um áramót
Jólakrónikan

Jólakrónikan

Jólakrónikan er komin út.
Lesa fréttina Jólakrónikan

Jólakveðjur frá vinnustöðum Akureyrarbæjar

Starfsmannahandbókin birtir hér jólakort frá vinnustöðum Akureyrarbæjar.... Endilega sendið jólakort á starfsmannahandbok@akureyri.is
Lesa fréttina Jólakveðjur frá vinnustöðum Akureyrarbæjar
Skráargatið - heilsupistill Heilsuverndar

Skráargatið - heilsupistill Heilsuverndar

Í nýjasta heilsupistli heilsuverndar er stutt umfjöllun um hið samnorræna skráargatsmerki á matvæli. Þar er m.a. fjallað um markmið skráargatsins, hverjar kröfurnar eru að baki merkingunni og á hvaða matvæli má ekki nota það á. Endilega kynnið ykkur málið betur og lesið pistilinn í heild sinni með að smella HÉR.
Lesa fréttina Skráargatið - heilsupistill Heilsuverndar
Gefum jólaljósum lengra líf

Gefum jólaljósum lengra líf

Plastiðjan Bjarg Iðjulundur hefur til margra ára haft umhverfisvernd og endurnýtingu að leiðarljósi og hefur til fjölda ára nýtt vaxafganga og kerti sem eru ekki söluhæf, svokallað úrgangsvax til útikertaframleiðslu. Á hverju ári eru notuð um 20 tonn af vaxi í útikertin, þar af eru um 7 tonn af úrgangsvaxi en restin er innflutt vax. Möguleiki væri að framleiða meira fengi Plastiðjan Bjarg Iðjulundur meira úrgangsvax. Mikilvægt er að landsmenn séu duglegir að skila inn kertaafgöngum. Hér á Akureyri er hægt er að skila afgöngunum á grendarstöðvarnar, til Endurvinnslunnar Furuvöllum 11, að Réttarhvammi og til Plastiðjunnar Bjargs Iðjulundar að Furuvöllum 1. Tekið er á móti öllum kertastubbum og vaxafgöngum til endurnýtingar. Einnig er tekið á móti sprittkertum en Plastiðjan Bjarg Iðjulundur stendur nú að endurvinnsluátakinu „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertum“ ásamt Samtökum álframleiðenda, Endurvinnslunni, Fura málmendurvinnsla, Gámaþjónustunni, Íslenska gámafélaginu, Málmsteypan Hella, Samtökum iðnaðarins og Sorpu. Tilgangurinn er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum. Ætla má að á ári hverju séu notuð um 3 milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í samhengi, þá dugar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól. Átakið hófst 6. desember og lýkur því 31. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um átakið má finna á vefsíðu þess hér
Lesa fréttina Gefum jólaljósum lengra líf
Fræðslusetrið Starfsmennt - tilkynning vegna náms á vorönn 2018

Fræðslusetrið Starfsmennt - tilkynning vegna náms á vorönn 2018

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur um árabil boðið aðildarfélögum að sækja fjölbreytt úrval námskeiða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Um tiltekin starfstengd námskeið er að ræða og er sætafjöldi takmarkaður þannig að áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á vef Starfsmenntar. Upplýsingar um allt nám og þjónustu má finna á vef starfsmenntar: www.smennt.is
Lesa fréttina Fræðslusetrið Starfsmennt - tilkynning vegna náms á vorönn 2018
Heilsupistill Heilsuverndar - B12 vítamín

Heilsupistill Heilsuverndar - B12 vítamín

Í nýjasta heilsupistli Heilsuverndar er fjallað um nauðsyn B12 vítamíns, afhverju skortur á þeim verður, hverjar afleiðingarnar eru og hvernig hægt er að fást við þann skort sem getur orðið. Pistilinn má finna með því að smella HÉR - endilega kynnið ykkur málið.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar - B12 vítamín
Verklag vegna áreitnismála

Verklag vegna áreitnismála

Vakin er athygli starfsfólks á upplýsingum um verklag í tengslum við áreitni á vinnustað og hvert starfsfólk getur leitað ráðgjafar upplifi það slíkar aðstæður á vinnustað eða verður vitni að þeim. Upplýsingar þess efnis er að finna undir efnisflokknum Starfsmannahandbók > Einelti - áreitni - ofbeldi. Þá er það ítrekað að allt starfsfólk Akureyrarbæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að sinna störfum sínum án þess að eiga á hættu einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða annarskonar ofbeldi.
Lesa fréttina Verklag vegna áreitnismála
Átak gegn kynbundnu ofbeldi

Átak gegn kynbundnu ofbeldi

Dagana 25. nóv. til 10. des. verður 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi sem felst í að draga ofbeldið fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Upphafsdagur átaksins 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum. Lokadagur átaksins 10. desember er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Dagsetningarnar tengja saman á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Allar nánari upplýsingar um átakið má finna HÉR.
Lesa fréttina Átak gegn kynbundnu ofbeldi
Hvað er að gerast á Öldrunarheimili Akureyrar?

Hvað er að gerast á Öldrunarheimili Akureyrar?

Þriðjudaginn 21. nóvember í Samkomusal Hlíðar kl. 13:00-15:00 verða fróðleg erindi um það sem er að gerast á Öldrunarheimili Akureyrar. Markmiðið er að upplýsa starfsfólk, íbúa, aðstandendur og gesti um þróun og nýjungar sem unnið hefur verið að á heimilinu.
Lesa fréttina Hvað er að gerast á Öldrunarheimili Akureyrar?