Frá og með 1. júlí 2014 fellur úr gildi tímabundin lögbundin lækkun á heimild launþega til frádráttar iðgjalda
til séreignarsparnaðar frá tekjuskattsstofni.
Launþegum verður því á ný kleift að greiða allt að 4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað í stað 2%
áður. Mótframlag launagreiðenda verður eftir sem áður allt að 2% gegn samsvarandi framlagi launþega.
Iðgjöld þeirra sem voru við lagabreytinguna með í gildi samning um að greiða 4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað, hækka sjálfkrafa úr 2% í 4%.
Þeir launþegar sem vilja hækka eða lækka iðgjöld sín þurfa að gera um það nýjan samning.