Úthlutun námsleyfa kennara og stjórnenda grunnskóla vegna skólaársins 2015-2016 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 156
fullgildar umsóknir um námsleyfi skólaárið 2015-2016. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 34 námsleyfi. Aðeins var
hægt að verða við um 22% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að ýmsum fullgildum og áhugaverðum umsóknum
varð að hafna.
Eins og fram kom í auglýsingu um úthlutun námsleyfa og samræmist 5. gr. reglna um Námsleyfasjóð var ákveðið að allt að
1/3 leyfa yrði úthlutað sérstaklega vegna náms sem tengist þróun kennsluhátta sem stuðla að fjölbreyttum námsaðferðum
í lestri/stærðfræði og kennslu nemenda af erlendum uppruna. Var 11 leyfum úthlutað til slíkra verkefna. Námsleyfum var skipt á milli
landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum.
Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum bréfleiðis og ætti hún að
berast þeim á næstu dögum. Hafi niðurstaðan ekki borist innan tveggja vikna er umsækjendum bent á að hafa samband við Klöru E. Finnbogadóttur.