Tilboð í Hlíðarfjall - Sala vetrarkorta í Hlíðarfjall 2009-2010 til starfmanna Akureyrarbæjar

Starfsfólki Akureyrarbæjar gefst kostur á að kaupa vetrarkort í Hlíðarfjalli á sama afslætti og Fjórir saman.

Nánari upplýsingar:

  • Framvísa þarf hausnum af launaseðli í afgreiðslunni í Hlíðarfjalli (ekki eldri en þriggja mánaða gamall) og ganga frá greiðslu í leiðinni.
  • Starfsfólk bæjarins getur keypt vetrarkort fyrir sig sjálft og einnig fyrir maka og börn.
  • Þeir sem eiga lykilkort og vilja nota þau áfram verða að koma með þau með sér þannig að hægt sé að hlaða inn á nýju korti fyrir 09/10
  • Þeir sem ekki eiga lykilkort geta keypt slík í Híðarfjalli

Verðskrá vetrarkorta:

  • 18.000 kr. Fullorðnir (fullorðnir eru þeir sem fæddir eru 1993 og fyrr)
  • 8.500 kr. Börn (fædd 2003-1994)
  • 1000 kr. Lykilkort

Á heimasíðunni www.hlidarfjall.is eru uppfærðar upplýsingar daglega um veður og vinda.

Munið skíðakennsluna: Hóptímar/Einkatímar með fagfólki í greininni. Kennslu er hægt að panta með stuttum fyrirvara.

ATH! að hægt er að nýta íþróttastyrki stéttarfélaganna til kaupa á vetrarkorti.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan